魔鏡歌詞網
魔鏡歌詞網 > 歐美歌手 > Skálmöld > Vögguvísur Yggdrasils > Múspell

Skálmöld



歌詞
專輯列表

Skálmöld

Múspell

Kvika streymir og kraftar losna,
klettar brenna, (klettar brenna).
Barnið dreymir en taugar trosna,

tárin renna (tárin renna).
Bráðna steinar og bergið flýtur,
brostnir draumar, (brostnir draumar).
Ljósið veinar og loginn hvítur,
landið kraumar, (landið kraumar).

Bálið sem veldur bardögum
bjarma á kveldið kastar.
Surtur fer heldur hamförum,
hér sefur eldur fastar.

Jötnar æða um jörð í molum.
Jöklar gráta.
Ísinn bræða á æstum kolum.
Æpir hnáta.
Móðir huggar þar mædda dóttur.
Múspell fagnar (Múspell fagnar).
Dansa skuggar er dofnar þróttur.
Dagur þagnar (Dagur þagnar).

Þú deyrð í nótt!

更多更詳盡歌詞 在 ※ Mojim.com 魔鏡歌詞網
(Himinninn er hulinn sóti,
hraunið rennur okkur móti.
Svartnætti til allra átta,
illt er myrkur Múspellsnátta).

(Finnum hvernig fætur svíða,
feigir eftir okkur bíða.
Saman munum lífið láta,
lítil rödd er hætt að gráta.
Ryðst úr sprungum, gjám og gjótum
gríðarbál í risafljótum.
Loki gefur lausan tauminn,
leikur sér við stríðan strauminn).

Liggjum við á litlu skeri,
lyftist glóðin nær.
Sárt að hérna beinin beri
barnung dóttir kær.

Loks ég finn að lítill skrokkur
lætur eftir sitt, (lætur eftir sitt).
Hraunið breiðir yfir okkur,
elsku barnið mitt, (elsku barnið mitt).